Mataræði Ungabarna Fyrstu Árin
![]() |
Bókin er svo mikið meira heldur en matreiðslu bók, hún er hinn fullkomni leiðarvísir fyrir foreldra ungabarna. Hvort sem um er að ræða fyrsta barn, annað barn eða það fimmta. Þarna eru upplýsingar um þá næringu sem ungabörn þarfnast, vítamín, kolvetni og prótein. Eins eru foreldrar/lesendur leiddir í gegnum undirbúning og það ferli hvernig við eigum að nálgast fyrstu föstu máltíðarnar. Það skiptir jú máli hver næringin er og hvaðan hún kemur. Það sem gerir uppskriftar þáttinn í bókinni hvað áhugaverðastan er hollustan en ekki hvað síst fjölbreytileikinn í þeim matvörum sem Annabel notar. Með því að gefa fjölbreytta og holla fæðu stuðlum við ekki bara að heilbrigði heldur erum við samhliða að þjálfa þessa litlu bragðlauka og maga, sem þá síður verða matvönd og geta fyrr notið hinnar almennu fjölskyldumáltíðar.





